Notendaskilmálar
Loftsíuskipti ehf. veitir þjónustu sem felst í útvegun, afhendingu og skiptum á loftsíum fyrir loftskiptikerfi. Bókun telst ekki staðfest fyrr en Loftsíuskipti ehf. hefur staðfest hana. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita eðlilegt aðgengi að loftskiptikerfi. Verð þjónustu er samkvæmt gildandi verðskrá á vefsíðu nema annað sé sérstaklega samið. Loftsíuskipti ehf. áskilur sér rétt til að breyta þjónustu, verði og skilmálum þegar þörf krefur. Óski viðskiptavinur eftir afbókun skal það gert með eins góðum fyrirvara og kostur er.