Takmörkun ábyrgðar

Loftsíuskipti ehf. veitir þjónustu við skipti á loftsíum og almenna yfirferð á loftskiptikerfum. Loftsíuskipti ehf. er ekki framleiðandi, hönnuður eða upprunalegur uppsetningaraðili loftskiptikerfa. Loftsíuskipti ehf. ber ekki ábyrgð á bilunum í loftskiptikerfum, framleiðslugöllum, fyrri uppsetningu búnaðar, sliti eða skemmdum sem voru til staðar áður en þjónusta hófst, ófyrirséðum göllum sem koma í ljós við síuskipti eða rekstrartruflunum sem tengjast aldri, ástandi eða viðhaldsferli kerfis. Við framkvæmd þjónustu skal leitast við að vinna samkvæmt bestu starfsvenjum. Ábyrgð Loftsíuskipta ehf. takmarkast við þá þjónustu sem fyrirtækið hefur sjálft framkvæmt. Loftsíuskipti ehf. ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verður vegna ástands eða bilunar loftskiptikerfis.